Skip to content
Flokkar

Stefnumót við frambjóðendur á Sólon

Höfundur: Þorkell Helgason, November 19th, 2010

Laugardaginn 20. nóvember kl. 13-18 bjóða nokkrir frambjóðendur til stjórnlagaþings til stefnumóts á 2. hæð kaffihússins Sólons í Bankastræti. Þetta er eitt af örfáum tækifærum sem kjósendum bjóðast til að hitta frambjóðendur, kynnast þeim, spyrja þá og skiptast á skoðunum. Heitt á könnunni og allir velkomnir.

Þeir frambjóðendur sem standa fyrir þessum viðburði eru Eggert Ólafsson, Gísli Már Gíslason, Guðrún Högnadóttir, Helga Sigurjónsdóttir, Margrét Dóra Ragnarsdóttir, Salvör Nordal, Vilhjálmur Þorsteinsson og Þorkell Helgason.

Comments are closed.