Greinar og pistlar

Ég hef margt skrifað um ævina, í blöð, tímarit, skýrslur. Hér á eftir eru upptalin og birt nokkur helstu skrif mín sem tengst geta framboði mínu til stjórnlagaþings. Kjósendur geta þannig áttað sig á sjónarmiðum mínum. En ég ítreka að ég vil fyrst og fremst vinna á stjórnlagaþingi að góðri sátt og geri mér þá fulla grein fyrri því að ég mun ekki ná öllum mínum sjónarmiðum fram. Lesendur eru beðnir velvirðingar á því að þessar gömlu greinar munu tínast inn smám saman.