Skip to content

Valfrelsi kjósenda

Höfundur: Þorkell Helgason, June 18th, 2016

[Eftirfarandi grein birtist á vefmiðlinum visir.is  2. júní 2016.]

Segjum að þrír bjóði sig fram til forsetakjörs. Nefnum þá A, B og C. Kjósandi nokkur er hrifnastur af C, en tekur þó mark á skoðanakönnunum sem segja að slagurinn standi á milli A og B. Hvað á hann að gera? Velja C og kasta atkvæði sínu hugsanlega á glæ? Eða velja annan hinna tveggja, þótt þeir séu honum ekki efstir í huga?

Ef farið hefði verið að tillögum Stjórnlagaráðs um fyrirkomulag forsetakjörs væri valið auðvelt fyrir vesalings kjósandann. Hann merkti við sinn mann, C, sem aðalval og við B til vara enda sé hann þó mun skárri kostur en A. Rætist spáin og fái C minnst fylgi flyst atkvæði kjósandans yfir á B, allt að hans ósk. Atkvæði hans fer ekki í glatkistuna.

Stjórnlagaráð lagði líka til að kjósendur fengju stóraukið vald til að velja sér frambjóðendur af lista (jafnvel fleiri en einum) og þyrftu ekki að láta sér nægja að krossa við pakkalausnir flokkanna.

Steypa Fréttablaðsins

Í dálki Fréttablaðsins þann 26. maí s.l., þeim sem ber heitið „Frá degi til dags“, er það talin undarleg barátta „í þágu lýðræðisins“ að vilja báðar ofangreindar breytingar á fyrirkomulagi kosninga. (Að vísu miðar þá blaðið við tvær kosningahrinur í forsetakjöri en ekki þá forgangsaðferð að sama marki, sem reifuð er að ofan og er af mörgum talin betri.) Blaðið segir það „áhugavert sniðmengi fólks“ sem beri þessar tvær umbætur fyrir brjósti. [Sjá http://www.visir.is/steypa-leidrett/article/2016160518817]

Nú vill svo til að nær 80% þeirra, sem afstöðu tóku í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012 um nýmæli í stjórnarskrá, lýstu stuðningi við aukið vægi persónukjörs. Jafnframt vildu tveir þriðjuhlutar kjósenda byggja nýja stjórnarskrá á tillögum Stjórnlagaráðs þar sem m.a. er lögð til sú breyting á fyrirkomulagi forsetakjörs sem lýst er að ofan. Þetta „sniðmengi fólks“ sem virðist vera með vafasamar skoðanir á lýðræðinu er þá býsna stórt.

Í leiðaragrein blaðsins hinn 19. maí s.l. segir undir fyrirsögninni „Steypa leiðrétt“ að „stundum er borin á borð slík vitleysa í opinberri umræðu að manni fallast hreinlega hendur“. Er ekki umfjöllunin í dálkinum umrædda um meinta mótsögn þess að auka valfrelsi kjósenda í forsetakjöri sem og í þingkosningum „steypa“ af þessu tagi? Eða á þetta að vera (aula)fyndni?

Comments are closed.