[Eftirfarandi var sent bæjarstjóra Garðabæjar 17. apríl 2026]


Til bæjarstjóra Garðabæjar, Almars Guðmundsonar

Við undirrituð, sem erum öll íbúar við Höfðabraut á Álftanesi, köllum eftir tafarlausum fundi með bæjarstjóra.

Tilefnið eru framkvæmdir sem hafa verið í gangi við að hlaða upp steypuhlunkum milli sjóvarnargarðs við Helguvík og Halakotstjarnar. Sjá meðfylgjandi myndir.

Í nokkrar vikur hafa umræddir steypuhlunkar verið fluttir hingað en tilgangur þeirra var íbúum algerlega óviss þar til en uppröðun þeirra hófst um síðustu helgi. Aðspurður upplýsti formaður Golfklúbbs Álftaness í símtali þann 12. apríl s.l. að framkvæmdin væri á þeirra vegum en jafnframt játaði hann að framkvæmdaleyfi lægi ekki fyrir og skilja mátti að um það hefði ekki verið sótt, en að það yrði gert.

Strax daginn eftir, 13. apríl var haft samband við skipulagsstjóra Garðabæjar og virtist hann vart eða ekki vita af þessari framkvæmd. Í skeyti sem einn af undirrituðum sendi honum sama dag var spurt um hvort framkvæmaleyfi fyrir umræddu verki hefði verið gefið út. Svar barst ekki svo að hringt var í hann 15. apríl og var þá sagt að leyfið hefði verið veitt daginn á undan, þ.e. 14. apríl.

Allt bendir til þess að í mesta lagi hafi liðið einn eða tveir sólarhringar frá því að sótt hafi verið um leyfi þar til það hafi verið veitt. Og hvort tveggja löngu eftir að framkvæmdir hófust.
Öll þessi málsmeðferð brýtur í bág við ákvæði reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Í 8. gr. hennar er m.a. kveðið á um að grenndarkynning skuli fara fram í tilvikum sem þessum.

Við undirrituð köllum því eftir tafarlausri grenndarkynningu, þótt um síðir sé, en á meðan verði séð til þess að framkvæmdir verði stöðvaðar.

Við undirrituð höfum margt út á þessa framkvæmd að setja, en einkum þetta:

    1. Af hlunkamúrnum er mikil sjónmengun, en hann skyggir á hinn fallega hlaðna sjóvarnagarð sem er úr náttúrulegu grjóti. Hlunkarnir blasa strax við frá hringveginum um Álftanesið og skerða jafnvel sýn út á sjóinn. Málið varðar því ekki aðeins þá íbúa sem næstir búa heldur alla sem fara um hringveginn.
    2. Sagt er að hlunkamúrinn sé til varnar golfvellinum. Í fyrsta lagi er það mjög til efs að svo sé. Það gerist vissulega að grót og þang berist í miklum vetrarveðrum yfir sjóvarnargarðinn, en það gerist þó það sjaldan og í það litlum mæli að það hlýtur að vera hagkvæmara að hreinsa eftir slíka uppákomur, eins og gert hefur verið hingað til, frekar en að reisa mikinn múr.
    3. Væntanlega stendur til að styrkja og hækka sjóvarnargarðinn, eins og þegar er byrjað á meðfram veginum út að Hliði. Þar með ætti mjög að draga úr þeim vanda sem sagður er. Jafnframt má spyrja hvort hlunkamúrinn verður ekki hindrun þegar kemur að umbótum á sjóvarnargarðinum.
    4. Hlunkamúrnum mun ætlað að hindra að grjót og þang, sem kemst yfir sjóvarnargarðinn, fari lengra. Það mun þá hlaðast upp á göngustígnum milli garðana. Hver ætlar að hreinsa þar til? Eða á að eyðileggja þennan mikilvæga göngustíg, að ekki sé talað um skarðið niður í Helguvíkina sjálfa.

Tekið skal fram að andmæli þessi eru ekki gegn golfvellinum sem slíkum, heldur gegn misvitri athafnasemi forystumanna golfklúbbsins. Engan vegin er amast við vel hirtum golfvelli sem fellur inn í umhverfið.

Mikilvægt er sá fundur sem við köllum eftir fari fram á staðnum, svo sem í Haukshúsi.

Við endurtökum kröfu okkar um tafarlausan opin fund með bæjarstjóra og því af starfsliði hans sem hann kýs.

Vegna þessa hvað tíminn er naumur hefur ekki tekist á ná í alla þá íbúa sem málið snertir, en við undirrituð ríðum á vaðið.

Virðingarfyllst, á Álftanesi, 17. apríl 2026,

_____________________________________________kt. _______________________________

_____________________________________________ kt. _______________________________
Lambhaga 5

_____________________________________________ kt. _______________________________

_____________________________________________ kt. _______________________________
Melshús

_____________________________________________ kt. _______________________________

_____________________________________________ kt. _______________________________
Helguvík

_____________________________________________ kt. _______________________________

_____________________________________________ kt. _______________________________
Vindás

_____________________________________________ kt. _______________________________
Strönd

_____________________________________________ kt. _______________________________

_____________________________________________ kt. _______________________________
Tjarnarbakki


Fylgiskjöl: Ljósmyndir af steypuhlunkamúr sem verið er að reisa milli sjóvarnargarðs við Helguvík og Halakotstjarnar. Myndirnar eru teknar um kl. 10 að morgni 17. apríl 2026.

[Fleiri myndir fylgdu bréfinu]