Skip to content

Málfundur um stjórnlagaþingskosninguna fimmtudag 3. feb. í Þjóðminjasafninu

Höfundur: Þorkell Helgason, February 2nd, 2011

Málfundur á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ um kosningu til stjórnlagaþings

Framkvæmd, úrslit og ógilding kosninganna

Fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl. 12:00-13:45 í fundarsal Þjóðminjasafnsins

Framkvæmd kosninga til stjórnlagaþings  þann 27. nóv. 2010 var kærð til Hæstaréttar sem hefur ákvarðað að kosningarnar séu ógildar. Tilvist stjórnlagaþings er því í uppnámi. Mikilvægt er fjallað sé um málið á ýmsum vettvangi og því boðar Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands til málþings um kosningar til stjórnlagaþings og ákvörðun Hæstaréttar. Tilgangur málþingsins er að velta upp nýjum hliðum málsins.

Dagskrá

1.        Drífa Sigfúsdóttir, rekstrarstjóri Verkfræði- og náttúruvísindasviðs er fundarstjóri og setur fundinn.

2.        Þorkell Helgason, próf. emeritus sem náði kjöri sem stjórnlagaþingmaður í framangreindum kosningum, greinir kosningarnar þar sem fjallað er um þátttöku, röðun kjósenda á frambjóðendum, úrslit og reynsluna af  aðferðinni sem beitt var við kosningarnar. Að lokum veltir Þorkell fyrir sér hvort kosningar til stjórnlagaþings vísi veginn um persónukjör á landsvísu.

3.        Jóhann P. Malmquist, prófessor í tölvunarfræði og ráðgjafi landskjörstjórnar við kosningarnar, fjallar um það meginatriði í ályktun Hæstaréttar hvort rekja hefði mátt atkvæði til einstakra kjósenda, og hvað hefði þurft til. Jafnframt lýsir hann talningarferlinu með stuttum myndbrotum.

4.        Reynir Axelsson, dósent í stærðfræði, gagnrýnir röksemdafærslu Hæstaréttar fyrir ályktun réttarins um ógildingu kosninganna.

5.        Eggert Briem, prófessor, dregur málið saman og reifar í hvaða stöðu það er nú.

Nánari upplýsingar gefur Ingi Rafn Ólafsson markaðs- og kynningarstjóri Verkfræði- og náttúruvísindasviðs í síma 772-1400, ingirafn@hi.is

Comments are closed.